Júlíana og Vala fá óþægilega hvatningarræðu í Venjulegu Fólki: „Ég vil hafa þáttinn í kvöld eins og blæðandi píku mömmu þinnar“

Við höldum áfram að hita upp fyrir sjónvarpsþættina Venjulegt fólk sem koma í Sjónvarp Símans á föstudaginn. Í atriðinu hér að neðan má sjá þegar þær Júlíana og Vala undirbúa sig fyrir sjónvarpsþátt sinn og fá mjög undarlega og óþægilega hvatningingarræðu frá skrautlega leikstjóranum Kötlu.

Sjá einnig: Júlíana og Vala fóru í sprenghlægilega myndatöku: „Þú ert bara belja, þú brosir ekkert“

Vala Kristín og Júlíana Sara fara með aðalhlutverk í þáttunum Venjulegt fólk en þær léku áður saman í þáttunum Þær Tvær. Þær skrifa einnig þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum sem leikstýrir þáttunum. Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst leika einnig á þáttunum sem fjalla um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna.

Sjáðu myndbandið

Auglýsing

læk

Instagram