Justin Bieber með fjölbreyttar kröfur, vill tekíla, bjór, nóg af nammi, og lífræna banana

Kanadíska poppstjarnan Justin Bieber vill fá tekíla, bjór, mat og nammi baksviðs á væntanlegum tónleikum sínum á Íslandi. Þetta kemur fram í Fréttatímanum, sem hefur kröfulistann undir höndum.

Bieber kemur fram á tónleikum í Kórnum í Kópavogi 8. og 9. september næstkomandi. Um 38 þúsund gestir sækja tónleikana og um upphitun sjá 101 drengirnir í Sturla Atlas.

Í umfjöllun Fréttatímans kemur fram að Bieber vilji Bud Light, Corono og Stella-bjór til að svala þorstanum. Þá vill hann gott úrval af gosi og orkudrykkjum, te og flöskuvatni. Hann biður einnig sérstaklega um tvær flöskur af Don Julio 1942 tekíla.

Bieber vill ekki svelta baksviðs og Fréttatíminn greinir frá því að hann vilji fjölbreytt úrval ávaxta, lífræna banana, samlokubrauð, álegg, lífrænan kalkún og Provolone-ost ásamt svörtum ólífum.

Hann hatar ekki samlokurnar en frægt er að hann stoppaði fyrst á samlokustöðunum Lemon og Subway í Reykjanesbæ þegar hann kom til landsins í september á síðasta ári.

Okkar maður er mikill sælgætisgrís ef marka má umfjöllun Fréttatímans. Hann vill fá nóg af Skittles, venjulegu og súru, M&M og þrjár tegundir af Oreo-kexi. Loks vill hann tyggjó, Twix, Kit Kat og tvær tegundir af morgunkorni.

Auglýsing

læk

Instagram