Beyoncé og Childish Gambino flytja „Can You Feel the Love Tonight“ í nýrri Lion King stiklu

Fréttir

Lagið Can You Feel the Love Tonight samdi enski tónlistarmaðurinn Elton John í samstarfi við samlanda sinn Tim Rice (sem er textasmiður og rithöfundur). Lagið hljómaði í Disney-teiknimyndinni The Lion King sem kom út árið 1994 og var það jafnframt valið besta frumsamda lagið á Óskarsverðlaunahátíðinni sama ár. 

Næstkomandi 19. júlí verður ný útgáfa af The Lion King frumsýnd. Í gær (23. júní) rataði ný stikla úr myndinni á Youtube (sjá hér að ofan). Í stiklunni hljómar lagið Can You Feel the Love Tonight—en enginn Elton John í þetta skipti; þess í stað eru það Donald Glover, einnig þekktur sem rapparinn Childish Gambino, og Beyoncé sem flytja lagið. Þá fara þau Glover og Beyoncé einnig með aðalhlutverk myndarinnar: hinn fyrrnefndi talsetur hlutverk Simba og hin síðarnefnda hlutverk Nölu. Þá tala þeir Eric André og John Oliver einnig inn á myndina. James Earl Jones mætir aftur til leiks sem Mufasa. 

Nánar: https://pitchfork.com/news/hear-beyonce-and-childish-gambino-sing-can-you-feel-the-love-tonight-in-new-lion-king-clip/

Auglýsing

læk

Instagram