Katrín segir mikilvægt að Alþingi grípi til aðgerða vegna Klaustursmálsins: „Hélt satt að segja að við værum komin lengra á veg“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur tjáð sig um upptökurnar sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum af þingmönnum Miðflokksins og Flokks fólksins að tala með niðrandi hætti um konur, samkynhneigða og fatlaða. Katrín segir mikilvægt að Alþingi fari yfir málið og grípi til aðgerða.

Katrín segir upptökurnar uppfullar af fordómum, kvenfyrirlitningu og óheilbrigðum viðhorfum til stjórnmála.

„Þau orð sem komu úr munni þingmannana eru ótrúleg og dapurleg. Ég hélt satt að segja að við værum komin lengra á veg í raunverulegri viðhorfsbreytingu, núna ári eftir #églíka-byltinguna.“

Hún segir að Forsætisnefnd Alþingis muni fara yfir málið. Hún segir einnig mikilvægt að samfélagið taki sameiginlega á því meini sem slík orðræða skapi sem og þeim ótta og þeirri vanlíðan sem hún veldur.

„Nú þegar við fögnum hundrað ára afmæli fullveldisins eigum við að hugsa um þau gildi sem við viljum hafa að leiðarljósi í samfélagi okkar. Þar hljótum við að vilja að hafa gildi á borð við jafnrétti og virðingu í hávegum. Sú orðræða sem við höfum lesið um í fjölmiðlum er því miður í fullkominni andstöðu við slík gildi. Sem samfélag eigum við að hafna slíkri orðræðu.“

Auglýsing

læk

Instagram