today-is-a-good-day

Lögregla leitar ökumanns sem ók á sjö ára dreng

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að ökumanni rauðrar fólksbifreiðar sem ók á sjö ára dreng á reiðhjóli í Árskógum í Reykjavík skömmu fyrir klukkan 16 í gær.

Í tilkynningu lögreglu kemur fram að líkamstjón hafi hlotist af en ökumaðurinn hafi ekið rakleiðis af vettvangi. Slysið átti sér stað á göngustíg sem liggur meðfram Skógarseli og aftan við bensínstöð N1 að Árskógum.

„Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi,” segir í tilkynningu lögreglunnar.

Lögreglan biður ökumann rauðu fólksbifreiðarinnar um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Auglýsing

læk

Instagram