Lögreglan á Norðurlandi eystra er með þrjá menn í haldi vegna rannsóknar á alvarlegu kynferðisbroti sem talið er hafa átt sér stað aðfaranótt sunnudags á hóteli í miðbæ Akureyrar. DV.is sagði fyrst frá málinu en þegar sú frétt var skrifuð virtist einungis búið að handtaka einn mannanna. Samkvæmt heimildum Nútímans er nú búið að handtaka alla sem grunaðir eru í málinu.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglu en meint atvik er sagt hafa átt sér stað á hóteli í bænum og að brotaþoli hafi í kjölfarið leitað sér aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Myndband af verknaðinum sagt vera í dreifingu
Heimildarmaður Nútímans segir að meint brot hafi verið tekið upp á myndband og að efnið hafi farið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Ekki hefur þó fengist staðfest hvort slíkt myndefni hafi fundist eða verið gert upptækt við rannsókn málsins.
Lögreglan vildi ekki staðfesta þessar upplýsingar þegar eftir því var leitað.
Áhrifavaldur sagður meðal hinna handteknu
Einnig hefur Nútíminn heimildir fyrir því að einn þeirra sem handteknir voru sé þekktur áhrifavaldur. Þegar það var borið undir lögregluna á Norðurlandi eystra vildi hún hvorki staðfesta né neita þeim upplýsingum.
Lögregla hefur þó staðfest að málið sé til rannsóknar og að fleiri en einn aðili liggi undir grun en segir að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.