Taxý Hönter hellir sér yfir fjölmiðla og Isavia – Birtir myndband af samskiptum við blaðamann

Aðgerðasinninn Friðrik Einarsson, sem kallar sig Taxý Hönter, hefur birt færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun og stjórnunarhætti tengda leigubílaþjónustu við Keflavíkurflugvöll.

Í færslunni segir Friðrik að hann hafi ítrekað lent í átökum við femínista í fjölmiðlum, eins og hann orðar það, og að slík samskipti fari oft út um þúfur vegna orðalags og viðkvæmni. Hann rifjar þar upp fyrri samskipti við blaðamann þar sem hann telur sig hafa fengið neikvæða umfjöllun í fjölmiðlum.

Auglýsing

Hann beinir gagnrýni sinni sérstaklega að Isavia og yfirmanni samgöngudeildar fyrirtækisins, Jóhanni Torfa Ólafssyni. Friðrik segir að staðan á leigubílaplaninu við Keflavíkurflugvöll hafi verið algerlega óviðunandi um langa tíma og að ekkert bóli á lausnum. Hann gagnrýnir nýja lausn, sem byggir á snertiskjám þar sem farþegar velja sér leigubílafyrirtæki, og segir að „vandræðagemsarnir“ hafi þegar fundið leið framhjá henni.

Hann vísar þar til dæmis til Noregs, þar sem svipað kerfi hafi verið tekið upp á flugvellinum í Ósló, en samkvæmt heimildum hans hafi vandamálið einfaldlega flust inn í komusalinn á flugvellinum þar sem einstaklingar reyni að hafa áhrif á val farþega eða bjóða þjónustu utan kerfisins áður en farþegarnir komast að snertiskjánum.

Myndband sýnir símtal við blaðamann

Friðrik birtir myndband með færslunni en þar sem heyra má símtal hans við starfsmann fjölmiðils. Í myndbandinu reynir hann að komast í samband við blaðamann sem áður hafði fjallað um málefni tengd leigubílum við Keflavíkurflugvöll.

Friðrik kynnir sig í símtalinu sem umdeildan leigubílstjóra sem hafi birt myndbönd á netinu og sé með nýtt mál fyrir þau að fjalla um. Hann útskýrir að fyrra viðtal hafi snúist um skort á gæslu á flugvellinum og að hann telji að upplýsingar frá Isavia hafi ekki staðist skoðun.

Friðrik lýsir í kjölfarið áhyggjum sínum af innleiðingu snertiskjákerfisins á Keflavíkurflugvelli og vísar í dæmið frá Osló og það vandamál sem þegar hafi myndast þar.

Í myndbandinu segir Friðrik að um menn frá mið austurlöndum sé að ræða en viðmælandi hans spyr þá hvort það skipti máli hvaðan viðkomandi séu, sem veldur því að Friðrik skellir á.

Hefur verið í umræðunni lengi

Friðrik hefur lengi gagnrýnt ástandið við Keflavíkurflugvöll, sem hefur komið til tals á Alþingi og segir að lítið hafi breyst þrátt fyrir það. Hann segir að leigubílstjórar heyri lítið frá yfirvöldum og að ekkert bóli á lausnum.

Nútíminn hefur nokkrum sinnum fjallað um Friðrik og baráttu hans fyrir lausnum á Keflavíkurflugvelli.

Nútíminn í vettvangsferð með Taxý Hönter á Keflavíkurflugvöll – Ofrukkanir og svindl

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing