San Francisco bannar sölu og framleiðslu á rafrettum

Ný lög þess efnis að banna sölu og framleiðslu á rafsígarettum voru samþykkt í San Francisco í dag. San Francisco er fyrsta stórborg Bandaríkjanna til þess að innleiða slíkt bann.

Sjá einnig: Eldri veiparar brjálaðir yfir umfjöllun fjölmiðla um rafrettur: „Koma slæmu orði á rafrettur og veip“

Stuðningsmenn löggjafarinnar telja hana nauðsynlega fyrir heilsu almennings og aukins fjölda ungmenna sem eru farin að nota rafrettur.

Embættismenn kusu um málið í gær og var samþykkt á bann við sölu í búðum og einnig við dreifingu vörunnar með pósti til borgarinnar.

 

Fjöldi ungra Banda­ríkja­manna sem nota rafrett­ur jókst um 1,5 millj­ón­ir árið 2018. Alls notuðu 3,6 millj­ón­ir mennta- og há­skóla­nema rafrett­ur.

Auglýsing

læk

Instagram