Sjáðu fimm stjörnu hótel strákanna okkar í Rússlandi

Starfslið KSÍ var búið að velja dvalarstað íslenska karlalandsliðsins í Rússlandi áður en liðið tryggði sér sæti á HM. Þetta kemur fram á Fótbolti.net. Sjáðu myndirnar hér fyrir neðan.

Landsliðið dvelur á Nadezhda-hótelinu í Gelendzhik sem er 55 þúsund manna strandbær í Krasnodarfylki. Bærinn stendur við Svartahaf. Leikirnir á HM fara fram um allt Rússland en hótelið verður notað sem einskonar bækistöðvar. Fyrsta desember verður dregið í riðla fyrir keppnina en þá kemur fram hvar leikir liðsins fara fram.

Í umfjöllun á Fótbolti.net kemur fram að hótelið sé fimm stjörnur með líkamsræktarsal og fundarherbergjum en þar er einnig að finna sundlaugar og annan lúxus. Tvær hæðir hafa verið bókaðar undir landsliðið.

Auglýsing

læk

Instagram