Sjáðu geggjaða auglýsingu Coca-Cola fyrir HM sem Hannes leikstýrði

Landsliðsmarkmaðurinn Hannes Þór Halldórsson leikstýrir nýrri auglýsingu Coca-Cola fyrir HM í Rússlandi. Auglýsingin er stjörnuprýdd og HÚH-ið okkar fræga leikur stórt hlutverk. Sjáðu hana hér að neðan.

Fjölmargir þjóðþekktir Íslendingar koma fram í auglýsingunni, meðal annars íþróttafólkið Gunnar Nelson, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Björgvin Karl Guðmundsson, Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður, Eiður Smári Guðjohnsen, tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti og svo auðvitað leikmenn landsliðsins.

Það tók um sjö mánuði að framleiða auglýsinguna og um 13 daga að taka hana upp að því er kemur fram í frétt Vísis. Tekið var upp í æfingaferð landsliðsins í Bandaríkjunum í apríl og svo á nokkrum stöðum hér á landi, meðal annars á Ísafirði, Akureyri, Reykjavík og Hveragerði.

Auglýsingin er hluti af herferð Coca-Cola sem nefnist SAMAN og í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að skilaboð herferðarinnar séu skýr:„Það eru ekki bara þeir 11 leikmenn sem eru á vellinum sem eru að spila á HM. Við erum öll að spila á HM, SAMAN.“

Áfram Ísland

Auglýsing

læk

Instagram