Sjáðu hvernig spádómssvínið Markús spáir leik Svíþjóðar og Englands á eftir

Spádómssvínið Markús, sem Nútíminn hefur áður fjallað um, hélt uppteknum hætti og mætti galvaskur í sjónvarpsþáttinn This Morning og spáði fyrir um úrslit leiks Svíþjóðar og Englands eins og hann hefur gert fyrir alla leiki Englands á HM. Hann hefur spáð rétt fyrir um úrslit allra leikja Englands á HM í Rússlandi.

Spáin er hávísindaleg en Markús spáir fyrir um úrslit leikjanna með því að velja sér epli til að borða sem eru annað hvort merkt fána Englands eða andstæðingsins.

Sjá einnig: Spádómssvínið Markús hefur spáð rétt fyrir um alla leiki Englands á HM

Það var gríðarleg spenna hjá kynnum þáttarins í stúdíóinu þegar skipt var yfir í svínastíu spádómssvínsins Markúsar í Derby. Eftir örlítinn umhugsunarfrest arkaði Markús beint að eplunum sem merkt voru með enska fánanum og þykir það tákna að England vinni leikinn á eftir.

Mikil fangaðarlæti brutust út í stúdíóinu en það verður spennandi að sjá hvort að Markús hafi rétt fyrir sér í fimmta skiptið

Efasemdaraddir hafa heyrst um spádómsgáfu Markúsar en Scott Bryan vill meina að það sé af og frá að um svindl sé að ræða

Auglýsing

læk

Instagram