Stuðningsmenn Swansea grátbiðja Gylfa um að vera áfram hjá félaginu, sjáðu myndbandið

Grjótharðir stuðningsmenn Swansea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hafa birt myndband á Youtube sem á að sannfæra Gylfa um að vera áfram hjá félaginu. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Myndbandið er í formi lags þar sem Gylfi er hreinlega grátbeðinn um að fara ekki fet. Gylfi hefur verið orðaður við ýmis félög en Everton er þar á meðal. „Við erum að reyna okkar besta við að sannfæra hinn stórkostlega Gylfa um að vera áfram hjá Swansea,“ segir í skilaboðum með myndbandinu.

Gylfi getur varla farið eftir að hafa horft á þetta, eða hvað?

Auglýsing

læk

Instagram