Auglýsing

Þótt sólin skín þá mega ekki allir bjóða upp á bjór utandyra: „Virðist víða vera pottur brotinn“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna daga haft eftirlit með veitingastöðum og kannað sérstaklega hvort umræddir staðir hafi leyfi til útiveitinga. Með hækkandi sól vilja gestir gjarnan njóta matar og drykkja utandyra við veitingastaði, en til að svo sé heimilit þarf slíkt að vera tilgreint á útgefnu rekstrarleyfi veitingastaða.

Samkvæmt lögreglunni virðist víða vera pottur brotinn en athugasemdir hafa verið gerðar á um helmingi veitingastaðanna sem lögreglan hefur heimsótt undanfarna daga.

„Sérstaklega hefur þetta verið áberandi með áfengi, en þess hefur gjarnan verið neytt á útisvæðum veitingastaða án þess að leyfi sé fyrir hendi. Samhliða rekstrarleyfi til útveitinga þarf að liggja fyrir starfsleyfi frá heilbrigðisyfirvöldum og afnotaleyfi sveitarfélags vegna borgar/bæjarlands ef það á við. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórnsýsluákvarðanir í málum sem varðar brot á rekstrarleyfi,“ segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og tekur fram að við slíkum brotum liggur sekt og/eða tímabundin svipting leyfis.

Veitingamenn hafa tekið afskiptunum vel, en þeim hefur jafnframt verið góðfúslega bent á að sækja um leyfi til útiveitinga hjá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir þá veitingamenn sem vilja bjóða upp á ískaldan utandyra er bent á að hafa samband í gegnum tölvupóstinn leyfi@syslumenn.is

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing