Transbarn leikur í Modern Family: „Svo stolt af því að hafa leikstýrt þessu magnaða barni“

Jackson Millarker er átta ára gamalt transbarn og leikur í væntanlegum þætti Modern Family. Leikstjórinn Ryan Case, tilkynnti þetta á Twitter. Hún og Jesse Tyler Ferguson, leikari í þáttunum, segjast vera virkilega stolt af þættinum.

Þau hafa fengið mikið lof frá foreldrum transbarna á samfélagsmiðlum

Jackson leikur nýjan vin hennar Lily, dóttur Cam og Mitchell, í þættinum sem verður sýndur í Bandaríkjunum á morgun á sjónvarpsstöðinni ABC. Þátturinn heitir „A Stereotypical Day“ eða staðalímyndardagur á íslensku.

Auglýsing

læk

Instagram