Útlit fyrir að uppselt verði á landsleikinn á laugardag – aðeins 300 miðar eftir

Útlit er fyrir að uppselt verði á landsleikinn á laugardag þegar kvennalandsliðið í fótbolta mætir Þýskalandi í undankeppni HM 2019 á Laugardalsvelli en aðeins eru um 300 miðar eftir. KSÍ greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í morgun.

Nútíminn greindi frá því á mánudag að 7.500 manns væru búin að kaupa miða á leikinn og því yrði áhorfendametið líklega slegið en það stendur í 7.521 og var sett þegar stórlið Brasilíu spilaði vináttuleik á Laugardalsvelli í fyrra.

Sjá einnig: Stelpurnar okkar slá áhorfendametið á laugardag

Nú í morgun greindi KSÍ síðan frá því á Twitter-síðu sinni að aðeins um 300 miðar séu eftir á leikinn og því ljóst að áhorfendamet verður slegið og sennilega verður uppselt en það hefur aldrei gerst á kvennalandsleik áður.

Leikurinn er sá mikilvægasti sem liðið hefur leikið því sigur á Þjóðverjum tryggir liðinu í fyrsta skipti í sögunni sæti á HM sem fer fram í Frakklandi á næsta ári.

Leikurinn hefst klukkan 15 á laugardag en hver fer að verða síðastur að tryggja sér miða á leikinn, þá er hægt að nálgast á hér

Auglýsing

læk

Instagram