Venjulegt fólk slær í gegn – Met í Sjónvarpi Símans

Gamansama þáttaröðin Venjulegt fólk var frumsýnd í heild sinni í Sjónvarpi Símans Premium síðastliðinn föstudag. Þáttaröðin var spiluð yfir 50,000 sinnum á aðeins þremur dögum og náðust yfir 700,000 spilanir í Sjónvarpi Símans Premium í síðustu viku, meira en nokkru sinni fyrr.

Sjá einnig: Hilmar og Dóri DNA ræða ástarlífið í nýju atriði úr Venjulegu Fólki: „Við rífumst og svo rúnka ég mér“

Með aðalhlutverk í þáttunum fara Vala Kristín og Júlíana Sara sem léku áður saman í þáttunum Þær Tvær. Þær skrifa einnig þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum sem leikstýrir þáttunum. Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst leika einnig á þáttunum sem fjalla um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna.

 

Auglýsing

læk

Instagram