DISNEY stjarnan Bella Thorne græðir milljón dollara á sólarhring með ONLYFANS sem leyfir nekt – myndir!

Bella Thorne er þekktust sem CeCe Jones í Disney þáttaröðinni „Shake It Up“. Það gilda strangar reglur um hegðun leikara sem eru á samningi við Disney en Bella hefur brotið þær flestar. Hún er nú orðin 22 ára og græðir vel á áhugamálum sínum.

Nýlega leikstýrði hún klámmynd fyrir Pornhub og hefur nú opnað reikning á síðunni ONLYFANS þar sem engar reglur gilda um nekt eða annað.

Hún er ánægð að geta átt í samskiptum við aðdáendur sína á opnum og óritskoðuðum vettvangi. Ljóst er að margir vonast eftir nektarmyndum með því að greiða fyrir aðgang að Onlyfans síðu hennar en óvíst er hvaða efni hún mun setja út.

Onlyfans hefur verið kallað vændi eða klámsíða en aðrir segja að þetta sé frábær leið fyrir stjörnur til að eiga í beinum samskiptum við aðdáendur.

Á fyrsta sólarhringnum eftir að Bella opnaði Onlyfans var hún búin að græða 1 milljón dollara sem er algjört met á síðunni.

Auglýsing

læk

Instagram