Hallgrímur útskýrir hvernig nafnið af „Sextíu kíló af sólskini“ fæddist – Ein hans allra besta bók að mati gagnrýnenda!

Hallgrím Helgason gefur út í ár bók – eftir nokkra bið aðdáenda en hún hlaut nafnið „Sextíu kíló af sólskini“. Bókin fær frábæra dóma og er tilnefnd til Íslensku bókmennaverðlaunanna.

„Og nú stóð hann hér, Eilífur, einn á breiðri snjóblæjunni, sveittur af angist og hugsaði: Þrjú kíló hveiti fyrir þetta? Þrjú kíló hveiti fyrir bú mitt, konu, börn og kú? Þrjú kíló hveit fyrir allt mitt líf? En þá heyrði hann allt í einu baulað undir fótum sér.“

Hvernig fæðist svo nafnið á bók? Það er ekki alltaf hefðbundið eins og Hallgrímur útskýrir hér að neðan:

Sextíu kíló af sólskini fjallar um mikla umbrotatíma í íslenskri sögu; hér segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni. Saga sem bæði grætir og gleður.

Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga framtíð en það er eins og forlögin geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eftirlæti kaupmannsins á Fagureyri, þræll á framandi duggu eða niðursetningur hjá kotungum í Segulfirði?

Í stöðnuðu samfélagi torfaldar eru ekki fleiri möguleikar – en svo kemur síldin! Öreigar landsins sjá peninga í fyrsta sinn og allt breytir um svip.

Bókina er hægt að fá í bókabúðum og á vef forlagsins HÉR.

Auglýsing

læk

Instagram