today-is-a-good-day

Heimis börnum þætti vænt um ef þið mynduð lesa þennan póst – Vinsamlegast deilið!

Hún Helena Rós Heimisdóttir skrifaði Facebook færsluna hér fyrir neðan fyrir hönd allra Heimis barna.

Þeim þætti vænt um ef þið mynduð lesa þennan póst – og við vonum að þið deilið honum svo að sem flestir geti séð póstinn frá þeim.


Mér þætti mjög vænt um það ef þið gæfuð ykkur smá tíma til að lesa þennan póst! ?

20. desember var Pabbi okkar greindur með 4.stigs lungnakrabbamein sem hafði dreift sér í lærbein og gert honum ófært um að ganga. Hann var búinn að fara nokkrum sinnum til læknis útaf fætinum og öðrum verkjum en engar myndir voru teknar og hann aðeins greindur með tognun á mjöðm og stoðkerfisverki.

Við fórum upp á Neyðarmóttöku í Fossvogi 20. des. þar sem Pabbi var búinn að vera á hækjum í um 3 vikur og okkur leist ekkert á blikuna og báðum vinsamlegast um að það yrði tekin mynd af fætinum og var það þá gert um leið. Margir sérfræðingar skoðuðu myndina áður en næstu skref voru ákveðin. Myndin sýndi meinvarp efst í lærbeininu og mjaðmarlið og fjögur brot í liðnum. Efsti partur lærleggs var því eins og egg með brotinni skurn sem ekki mátti við neinu. Næsta myndataka var lungnamynd sem sýndi æxli í vinstra lunganu sem eru upptökin af krabbameininu og það hefur einnig breiðst út í önnur bein svo sem rifbein, herðablað og viðbein.

Krabbameinið er ekki skurðtækt en læknarnir ákváðu á aðfangadag að fjarlægja meinvarpið í mjöðminni og setja gervilið í staðinn svo að Pabbi gæti labbað! ? Pabbi var upp á spítala í 11 daga en fékk að fara heim í leyfi á aðfangadagskvöld til að vera með fjölskyldunni og fór svo í aðgerð á jóladag þar sem meinvarpinu var smúlað út og nýjum mjaðmarlið var komið fyrir. Á gamlársdag kom Pabbi heim á nýrri mjöðm tilbúinn að hefja slaginn við „krabbamennina“ eins og litla 5 ára systir okkar kallar meinið. ❤️

Það sem er í stöðunni núna gegn krabbameininu er lyfjameðferð hjá Landspítalanum, jákvæðni, von og hugrekki og við biðjum Guð um styrk til að hjálpa okkur í gegnum þetta verkefni.

Þetta er rosalega mikið sjokk fyrir okkur öll þar sem Pabbi er rosalega hraustur og frískur maður sem hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar með merki frá Krabbameinsfélaginu á handleggnum án þess að vita að hann væri með 4.stigs krabbamein.
Hann var slæmur í mjöðminni þá en ákvað að hrista það af sér og hlaupa samt.
Hann reykir ekki og hefur ekki drukkið áfengi í 31 ár! ??

Pabbi er fimm barna einstæður faðir og yngstu tvö af okkur systkinunum eru 7 ára og 5 ára sem vilja ekkert meira en að lækna pabba.. bara eins og við öll!!?

Við erum með styrktarsjóð til að hjálpa Pabba í gegnum komandi tíma og það yrði okkur svo kært að fá hjálparhönd frá ykkur sem geta.

Kt. 170766-5559
Rkn nr. 0545-14-002499

Með fyrirfram þökk frá Heimis börnum ?
( deiling af póstinum er velkomin )

Auglýsing

læk

Instagram