today-is-a-good-day

Viku gamlar myndir af RIHÖNNU með glóðarauga og áverka í andliti valda áhyggjum – hver er skýringin? – Myndir!

TMZ birti myndir sem voru teknar í fyrstu viku september 2020. Rihanna var stödd í bíl með sólgleraugu fyrir utan veitingastað í Santa Monica – en hún fór ekki inn sjálf. Þegar hún sat í bílnum tók hún gleraugun af í stutta stund og náði ljósmyndari að smella myndum af henni.

Þetta er ekki óvanalegt enda Rihanna ein myndaðasta kona í heiminum. Það sem veldur áhyggjum er að Rihanna virtist vera slösuð. Á myndunum er hún bólgin, með glóðarauga og áverka á enni.

TMZ hafði samband við talskonu Rihönnu sem sagði að þetta væri ekkert merkilegt. Hún var víst að renna sér á rafmagnshlaupahjóli þegar hún datt skyndilega á andlitið sem skýrir þessa áverka.

Segir talskonan að Rihanna sé heilbrigð og ekki hægt að líkja þessu við hjólaslysið sem Simon Cowell varð fyrir  um daginn en hann bakbrotnaði.

Aðdáendur Rihönnu hafa áhyggjur af því að þessi skýring talskonunnar sé tilbúningur enda virðist vanta öll smáatriði um slysið. Kannski koma frekari upplýsingar um málið en eins og staðan er núna er enginn staðfesting til staðar um að slysið hafi gerst.

Nokkrar spurningar aðdáenda eru: Hvar var Rihanna stödd á rafmagnshlaupahjóli? Hvar eru myndir af henni daginn sem slysið varð? Fór hún á spítala? Hvers vegna var ekki tilkynnt um slysið áður en myndirnar birtust? Og svo framvegis…

Ástæðan fyrir þessum spurningum og áhyggjum er stormasamt samband Rihönnu við Chris Brown. Fyrir rétt um viku birtist viðtal sem Oprah tók við Rihönnu 2012 þar sem söngkonan segir að hún og Chris séu farin að byggja upp traust samband eftir að nálgunarbanni sem dómstólar settu á hann var aflétt.

Það er óþægileg tilviljun að myndirnar birtist svona stuttu eftir að nýjar upplýsingar um samband Chris Brown og Rihönnu koma fram.  Myndirnar virðast líka vera mjög svipaðar myndum af konum sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi.

Slys á rafmagnshlaupahjólum eru fremur algeng og margir hafa dottið á andlitið. Þeir áverkar eru nær alltaf líkari rispum eða brunasárum sem koma þegar andlit fólks strýkst eftir götunni. Hér að neðan er mynd af konu eftir slys á rafmagnshjóli en áverkarnir eru ólíkir myndunum af Rihönnu.

Spjallborð á internetinu eru fljót að koma af stað samsæriskenningum svo við bíðum eftir frekari upplýsingum. Það er þó mikilvægt fyrir þá sem eru nánir Rihönnu að kanna málið betur ef hún skyldi vera stödd í ofbeldissambandi – hvort sem það er með Chris Brown eða öðrum manni.

Við bíðum frekari frétta en hér að neðan er frétt sem birtist 2. september um viðtal Opruh við Rihönnu. Vonandi er þetta allt saman í góðu lagi og Rihanna birtist þá aftur fljótlega – brosmild eins og við þekkjum hana.

 

———————————-

(Hér er frétt sem birtist 2. september)

————————————–

RIHANNA elskar Chris Brown þrátt fyrir líkamsárás – nálgunarbanni aflétt og þau að byggja upp traust? „Því miður alltof algengt“ – myndir

Oprah Winfrey deildi hlaðvarpi (Supersoul Conversations) sem innihélt áður óbirt viðtal við Rihönnu sem var tekið 2012. Í viðtalinu segir Rihanna að þau Chris séu mjög náin eftir að nálgunarbanni sem dómstólar lögðu á Chris Brown var aflétt. Hér að neðan má sjá brot úr samtali Rihönnu við Opruh.

“We’ve been working on our friendship again,” segir Rihanna. “Now we’re very very close friends. We’ve built up a trust again, and that’s – we love each other and we probably always will. And that’s not something we’re ever going to change. That’s not something you can shut off, if you’ve ever been in love.”

“I think he was the love of my life. He was the first love. And I see that he loved me the same way… it’s not even about us being together,” She said. “I truly love him. So the main thing for me is that he’s at peace. I’m not at peace if he’s a little unhappy, or he’s still lonely.”

Oprah spyr Rihönnu hvort hún telji að þau muni verða par aftur í framtíðinni: „He’s in a relationship of his own.” segir Rihanna. “I’m single but we have maintained a very close friendship ever since the restraining order has been dropped. We’ve just worked on it, little by little, and it has not been easy. It’s not easy.”


Komið hefur í ljós að Chris Brown beitti Rihönnu ofbeldi allan tímann sem þau voru saman sem endaði með frægri líkamsárás sem gerðist eftir Grammy hátíðina. Rihanna var illa farin og þurfti að gista á sjúkrahúsi eftir árásina.

Chris Brown var dæmdur fyrir þetta brot og flestir aðdáendur Rihönnu óskuðu þess að hann myndi láta sig hverfa alveg úr lífi hennar. Það var svo sett nálgunarbann á Chris Brown þar sem hann var talinn hættulegur Rihönnu rétt eftir árásina.

„Þetta er því miður alltof algengt“ segir Rita Smith sem rekur National Coalition of Domestic Violence (samtök gegn heimilisofbeldi). Hún las orð Rihönnu úr viðtalinu og sagði þetta dæmigert fyrir fórnarlömb heimilisofbeldis.

Ástin er sterk og mörg fórnarlömb snúa aftur í ofbeldisfull sambönd segir Rita Smith: „They love them, they think they change, and abusers are particularly good at convincing you they’ve changed.“

Þeir sem þekkja til Chris Brown í dag segja hann hafa litla stjórn á skapi sínu eins og fjölmörg dæmi hafa sýnt. Hegðun hans undanfarin ár hefur frekar versnað en batnað. Það er því ljóst að allir sem eiga í vina- eða ástarsambandi við þennan mann eru í ákveðinni hættu þegar hann skiptir skapi. Batnandi mönnum er best að lifa en ekkert í framkomu Brown bendir til að hann hafi bætt sig og sé að fá viðeigandi aðstoð.

———————————–

Auglýsing

læk

Instagram