Ísland í aðalhlutverki í aprílgabbi fyrirtækisins sem notaði óvart Hörpu til að kynna Rhode Island

Eins og Nútíminn greindi frá í gær var myndskeið sem sýnir hjólabrettakappa leika listir sýnar fyrir utan Hörpu var óvart notað í myndband til að kynna bandaríska fylkið Rhode Island.

Sjá einnigMyndskeið frá Íslandi óvart notað í hundruð milljóna herferð til að kynna Rhode Island

IndieWhip, fyrirtækið sem framleiddi myndbandið, hefur birt ansi smellið aprílgabb á Youtube þar sem þeir fara yfir í góðu gríni af hverju Ísland varð fyrir valinu. Sjáðu aprílgabbið í myndbandinu hér fyrir neðan.

Kynningarmyndbandinu hefur verið kippt úr umferð en því var dreift á vefsíðu fylkisins og á samfélagsmiðlum. Það var hluti af herferð til að kynna nýtt merki og slagorð fylkisins: „Cooler and Warmer“. CNN greinir frá því að herferðin hafi kostað um fimm milljónir dali, eða um 620 milljónir íslenskra króna.

Ferðamálaráð Rhode Island segir að um heiðarleg mistök sé að ræða. Betsy Wall, yfirmaður markaðsmála hjá ferðamálaráðinu, segir að fyrirtækið sem framleiddi myndbandið hafi fengið fyrir skýr fyrirmæli um að nota aðeins myndskeið frá Rhode Island.

IndieWhip, fyrirtækið sem framleiddi myndbandið, hefur lofað að laga það án endurgjalds. „Myndskeiðið sýnir samt hjólabrettakappa frá Rhode Island og það er tekið upp af manni frá Rhode Island,“ segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.

Auglýsing

læk

Instagram