Myndband: Dönsk ferðaskrifstofa notar kynlíf til að selja sólarlandaferðir — aftur!

Danska ferðaskrifstofan Spies hefur gefið út nýja auglýsingu þar sem áherslan er lögð á kynlíf eldra fólks. Sjáðu auglýsinguna hér fyrir neðan.

Spies sló í gegn með auglýsingunni „Do it for Mom“ eða „Gerðu það fyrir mömmu“ í fyrra.vAuglýsingin hefur fengið rúmlega níu milljón áhorf en í henni voru foreldrar hvattir til þess að kaupa sólarlandaferðir handa börnum sínum í von um að þau myndu fjölga sér.

Sjá einnig: Auglýsing sem hvetur dönsk ungmenni til að fjölga sér slær í gegn

Í nýju auglýsingunni er áherslan lög á eldra fólk. Eftir að hafa bjargað framtíð Danmerkur með síðasta myndbandi segist ferðaskrifstofan hafa komið auga á nýtt vandamál. Eftir að dönsk pör eignast börn stunda þau mun minna kynlíf. Það hefur áhrif á heilsu fólks og styttir lífslíkur þeirra, sem hefur slæm áhrif á alla fjölskylduna.

Spies hafa þó fundið lausn við því vandamáli. Aftur! Til þess að bæta kynlífið þitt og auka lífslíkurnar þarftu bara að kaupa sólarlandaferð og hjólin fara snúast.

Auglýsing

læk

Instagram