Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina

Fjörutíu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar.

Þar segir að þrjátíu og fjórir hafi verið stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Kópavogi, þrír í Mosfellsbæ og tveir í Hafnarfirði. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, tuttugu og sex á laugardag, fjórtán á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrjátíu og átta karlar á aldrinum 17-61 árs og sex konur, 17-60 ára.

Auglýsing

læk

Instagram