Íslenskum leigubílstjórum meinaður aðgangur að kaffistofu ISAVIA – „This is private property“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega hvernig komið hefur verið fram við íslenska leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli.

Í færslu á Facebook bendir hann á að íslenskir bílstjórar sem hafi starfað við fagið í áratugi séu nú útilokaðir frá kaffistofu sem áður var ætluð þeim, því hún hafi verið breytt í bænahús af erlendum leigubílstjórum.

Auglýsing

„Ég bara kemst ekki yfir þetta!“ skrifar Sigmundur Davíð og heldur áfram:
„Þú ert búinn að vera leigubílstjóri í 25 ár og þjónusta farþega eftir bestu getu. Í besta falli hefurðu samtímis náð að skrapa saman nokkrum aurum í lífeyrissjóð í von um að fá eitthvað greitt úr honum þegar þar að kemur.“

Hann segir íslenska bílstjóra nú standa frammi fyrir ósanngjarnri samkeppni:
„Allt í einu ertu lentur í samkeppni við menn hvaðan æfa að úr heiminum sem þurfa ekki að uppfylla sömu skilyrði og þú. Ganga fram eins og þeim sýnist og rukka jafnvel að vild.“

Færslan endar á harðorðri gagnrýni á Isavia og stöðuna sem hefur skapast:
„Svo máttu ekki einu sinni fara inn í kaffiskúrinn þinn til að pissa af því að hofmóðugt ríkisfyrirtæki er búið að breyta honum í bænahús fyrir þá sem tóku af þér vinnuna.“

„This is private property“

Atvikið sem RÚV greindi fyrst frá hefur vakið mikla umræðu á samfélagsmiðlum en í því sést íslenskur leigubílstjóri segja að þeir komist ekki einu sinni inn á kaffistofuna sem ISAVIA skaffar leigubílstjórunum því búið sé að breyta henni í bænahús.

Þegar fréttamaður RÚV reynir að fara inn í húsið stendur erlendur maður í dyragættinni og segir að húsið sé í einkaeigu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing