Vignir Vatnar Stefánsson, yngsti og nýjasti stórmeistari Íslands í skák, opnar sig af mikilli einlægni í nýju viðtali með Frosta Logasyni þar sem hann ræðir um lífshættulegt þunglyndi, sjálfsvígstilraun og tilganginn sem hann segir hafa bjargað lífi sínu.
Vignir er aðeins 22 ára gamall en hefur þegar náð þeim árangri í skák að teljast meðal fremstu skákmanna landsins. Í viðtalinu kemur þó skýrt fram að leiðin að árangrinum hafi verið allt annað en greið. Hann segir frá því að hann hafi byrjað að drekka ungur, aðeins fimmtán ára gamall, á sama tíma og hann upplifði vaxandi vanlíðan og þunglyndi.
Ætlaði að taka eigið líf
„Það tók mikið á árið 2020 og var mjög erfitt ár,“ segir Vignir í viðtalinu.
Þegar Frosti spyr hvort hann hafi farið langt niður í þunglyndi svarar Vignir hispurslaust:
„Já, það má segja það. Ég reyndi að taka mitt eigið líf.“
Hann segir að það sé „alveg galið“ að hugsa til þess í dag, þar sem hann upplifi sig nú hamingjusaman og sáttan við lífið. „Mér líður svo vel, ég er svo ánægður með lífið,“ segir hann og bætir við að hann vilji deila þessari reynslu einmitt vegna þess að hún geti verið öðrum hvatning.
„Maður á ekki að skammast sín fyrir þetta,“ segir hann og nefnir sérstaklega unga karlmenn sem opni sig í umræðuhópum á samfélagsmiðlum. „Þetta er svo leiðinlegt að lesa þetta þegar maður er búinn að vera á þessum stað og þekkir þetta.“
Í frásögn sinni lýsir Vignir því hvernig sjálfsniðurrif, lágt sjálfsálit og erfið upplifun af því að vera ungur strákur hafi safnast upp í langan tíma. Hann segir að hættulegasti punkturinn hafi verið þegar hann var búinn að ákveða dagsetningu.
„Það var 31. desember. Ég var bara búinn að ákveða þetta.“
Hann lýsir því hvernig vinur hans, Gauti Steinþórs, hafi komið óvænt hlaupandi inn til hans á örlagastundu, einfaldlega af því að hann vissi að Vigni liði illa. „Um leið og hann kom þá hágrét ég bara, en hann var þá kominn og þessu var afstýrt,“ segir Vignir.
Skákin varð akkerið
Eftir þetta segir hann að eitthvað hafi breyst grundvallarlega. Hann fór að hella sér af fullum krafti í skákina, æfði tíu til fjórtán tíma á dag án þess að sleppa degi, og á einu ári hækkaði hann um tvö hundruð Elo-stig. „Ég var bara kominn langleiðina í stórmeistarann,“ segir hann.
Vignir segir tilganginn hafa verið lykilinn. „Fyrir unga menn, eða bara karlmenn, er svo nauðsynlegt að elta tilgang,“ segir hann. Fyrir hann var sá tilgangur stórmeistaratitillinn. Síðar bættist ræktin við og bætt líðan með líkama sínum. „Þessir tveir hlutir breyttu lífi mínu gjörsamlega,“ segir hann.
Bróðurmissir mótaði æskuna
Í viðtalinu ræðir Vignir einnig um fjölskyldusögu sína og áföll sem hafa mótað líf hans. Hann missti bróður sinn aðeins sjö ára gamall, en bróðirinn var þá nítján ára. Hann lýsir minningum sínum af deginum þegar honum var sagt frá andlátinu og segir að raunveruleg meðvitund um missinn hafi ekki komið fyrr en nokkrum árum síðar.
„Þá rennur þetta almennilega upp fyrir mér að ég er aldrei að fara að sjá hann aftur,“ segir hann.
Hann segir móður sína hafa sýnt ótrúlegan styrk við að halda áfram eftir missinn og að lífið hafi, þrátt fyrir allt, haldið áfram. Þá ræðir hann einnig opinskátt um erfiðleika annarra systkina sinna, þar á meðal langvarandi fíknivanda í fjölskyldunni.
„Líf mitt og fjölskyldu minnar hefur alls ekkert verið einhver dans á rósum,“ segir Vignir. „Langt í frá.“
Í lok viðtalsins þakkar Frosti Vigni fyrir einlægni hans og segir sögu hans til mikillar eftirbreytni. Vignir segist sjálfur vilja að þessi hlið lífs síns fái að sjást, í þeirri von að hún geti hjálpað öðrum sem glíma við andlega erfiðleika að halda áfram og finna sinn tilgang.
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.