Áfram miklar líkur á eldgosi: Þensla heldur áfram undir Svartsengi

Sérfræðingar Veðurstofu Íslands telja áfram miklar líkur á eldgosi en samkvæmt líkanreikningum sem byggðir eru á GPS-gögnum frá 3. til 6. mars þá hafa um 1,2 milljón rúmmetrar af kviku bæst við í kvikuhólfið þessa daga. Samkvæmt Veðurstofu Íslands hafa þá í heildina rúmlega 10 milljón rúmmetrar af kviku safnast í kvikuhólfið en það er sama magn og var fyrir kvikuhlaupið 2. mars.

Eldgos er enn talið geta hafist með mjög stuttum fyrirvara, jafnvel á innan við 30 mínútum en líklegast er talið að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Skjálftavirkni við kvikuganginn hefur farið minnkandi síðan laugardaginn 2. mars, einkum síðustu daga þar sem fáir skjálftar hafa mælst. Veðurstofa Íslands tilgreinir þó að veður gæti hafa deyft eða truflað skjálftamælana. Þá er veðrið næstu sólarhringa talið l´liklegt til að hafa áhrif á eftirlitskerfi Veðurstofunnar.

Næsta sólarhringinn verður suðaustan strekkingur eða allhvass vindur með rigningu og takmörkuðu skyggni, einkum til fjalla. Í fyrramálið dregur úr úrkomu en á morgun og næstu daga er útlit fyrir stöku skúri og líklegt að skyggni verði lítið meðan þetta ganga yfir. Heldur dregur úr vindi um helgina, suðaustan stinningsgola eða kaldi á sunnudag.

Uppfært hættumat

Veðurstofan hefur uppfært hættumat. Hættustig er óbreytt frá síðast korti. Ein breyting hefur verið gerð á skiptingu svæða. Svæði 2 og 3 hafa verið sameinuð í eitt svæði. Í ljósi þess hvernig virknin hefur þróast er ekki talin lengur ástæða til að meta hættu á þessum svæðum í tvennu lagi. Nýtt hættumat tók gildi kl. 15 í dag, fimmtudaginn 7. mars. Hættumatið gildir til 12. mars að öllu óbreyttu.

Auglýsing

læk

Instagram