Leigubílstjórinn Mohamed Ali Chagra og vinur hans Amir Ben Abdallah dæmdir í 2,5 ára fangelsi fyrir nauðgun

Erlendur leigubílstjóri og vinur hans voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu í Kópavogi í febrúar 2024.

Leigubílstjórinn, Mohamed Ali Chagra sótti konuna á veitingastað í Hafnarfirði og ók með hana heim til vinar síns þar sem þeir nauðguðu henni. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku en hefur ekki verið birtur. Vísir greindi fyrst frá.

Auglýsing

Fram kom í frétt RÚV um málið í febrúar 2024 að mennirnir hefðu verið búsettir hér á landi í um tvö ár eftir að hafa fengið alþjóðlega vernd hér á landi.

Handteknir fljótlega eftir brotið

Tveimur dögum eftir að nauðgunin átti sér stað var Mohamed handtekinn við Leifsstöð. Vinur hans, Amir Ben Abdallah, var handtekinn um svipað leyti. Báðir voru síðar ákærðir fyrir nauðgun.

Þegar málið komst í fjölmiðla kom í ljós að Chagra starfaði áfram sem leigubílstjóri, þrátt fyrir ásakanirnar. Forstjóri City Taxi sagðist ekki hafa vitað af störfum hans hjá fyrirtækinu, þar sem Chagra hefði notað falsaðar upplýsingar til að fela tengsl sín við fyrirtækið.

Önnur leyfissvipting vegna sambærilegs máls

Samgöngustofa staðfesti að leigubílstjórar sem eru grunaðir um alvarleg brot geti misst starfsleyfi án tafar. Annað mál, þar sem karlmaður með leigubílaleyfi var til rannsóknar vegna kynferðisbrots, leiddi einnig til sviptingar.

Báðir mennirnir höfðu hlotið alþjóðlega vernd á Íslandi og búið hér í tvö ár. Í kjölfar málsins hefur dómsmálaráðherra lagt fram frumvarp sem heimilar afturköllun verndar ef einstaklingur fremur alvarlegt brot.

Frumvarpið hefur verið samþykkt í ríkisstjórn og verður lagt fyrir Alþingi.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing