Auglýsing

Nýjar hættur í Grindavík: Sjáðu á korti hvaða svæði ber að varast

Veðurstofa Íslands hefur gefið út uppfært hættumatskort í kjölfar þess að ríkislögreglustjóri hefur fallið frá tilmælum um brottflutning úr Grindavík frá og með 19. febrúar og vegna ákvörðunar lögreglustjórans um breyttar heimildir íbúa og fyrirtækja hvað varðar aðgengi að bænum.

Uppfært hættumatskort tekur gildi á morgun, 20. febrúar kl. 7, á sama tíma og nýjar reglur lögreglustjórans á Suðurnesjum um aðgengi að Grindavík taka gildi.

Í nýjustu útgáfu af hættumatskorti Veðurstofunnar hefur svæði 7 verið bætt við í samráði við almannavarnir. Innan svæðis 7 er Nesvegur, en aukinni umferð er nú beint um veginn vegna aðgengis að svæðinu við Svartsengi og Grindavík. Á svæðinu eru hættur vegna sprunguhreyfinga og jarðfalls ofan í sprungur. Litakóði annarra svæða er óbreyttur frá síðasta korti.

Hér má sjá tilkynningu lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Eins og áður sýnir kortið mat á hættu sem er til staðar og hættu sem gæti skapast með litlum fyrirvara. Eingöngu er lagt mat á hættu innan þessara svæða, en hætta getur leynst utan þeirra.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing