Nýtt myndband frá Aðalheiði – Fjarlægð í samböndum

Nútíminn hefur hafið reglulegt samstarf við Aðalheiði Jensen þar sem hún birtir myndbönd um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt. Nú er komið að nýju myndbandi í röðinni.

Fjarlægð skýr vísbending

Í myndbandinu fjallar Aðalheiður um hvað það getur þýtt þegar manneskja sem þú ert að kynnast fer að verða fjarlæg. Hún bendir á að slík hegðun geti verið merki um að viðkomandi sé ekki tilbúinn í samband, frekar en eitthvað sem eigi að útskýra eða bíða eftir að breytist.

Auglýsing

Hún leggur áherslu á að heilbrigð tenging eigi að veita öryggi og ró, en ekki skapa óvissu eða ringulreið í samskiptum.

Starfar við heilsu og lífsgæði

Aðalheiður er eigandi Tilveran Barre og yoga stúdíó á Garðatorgi 3. Hún hefur lagt áherslu á að styðja fólk í að bæta lífsgæði sín með hreyfingu, heilsu- og lífsráðgjöf.

Fleiri myndbönd frá Aðalheiði verða birt reglulega á Nútímanum þar sem hún heldur áfram að taka fyrir málefni sem tengjast daglegu lífi og samskiptum fólks.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Aðalheiður Jensen (@allajensen)

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing