68 prósent landsmanna hafa áhyggjur af hlýnun jarðar

Tæp 70 prósent Íslendinga kváðust hafa miklar áhyggjur af hlýnun jarðar í nýrri könnun MMR. Aðeins ellefu prósent kváðust hafa litlar áhyggjur en 35 prósent hafa mjög miklar áhyggjur.

Konur höfðu meiri áhyggjur af hlýnun jarðar heldur en karlar og kváðust 76 prósent kvenna hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur, samanborið við 60 prósent karla.

Áhyggjur af hlýnun jarðar voru hvað mestar hjá yngsta og elsta aldurshópnum en 77 prósent þeirra á aldrinum 18-29 ára kváðust hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur og 70 prósent þeirra 68 ára og eldri.

Nokkur munur reyndist á svörum eftir búsetu en íbúar höfuðborgarsvæðisins voru líklegri til að segjast hafa mjög miklar áhyggjur af hlýnun jarðar heldur en íbúar af landsbyggðinni.

 Alls kváðust 96 prósent stuðningsfólks Samfylkingarinnar hafa miklar áhyggjur af hlýnun jarðar og 89 prósent stuðningsfólks Vinstri grænna. Af stuðningsfólki Miðflokksins kvaðst 39 prósent hafa miklar áhyggjur af hlýnun jarðar en 36 prósent litlar áhyggjur.

Könnunin var framkvæmd dagana 23. til 29. maí 2019og var heildarfjöldi svarenda 932 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Auglýsing

læk

Instagram