Aðdáendur fagna endurkomu Kim Kardashian á samfélagsmiðla: „Ég saknaði ykkar“

Kim Kardashian hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hún var rænd í íbúð í París í október á síðasta ár. Þá réðust vopnaðir menn inn, ógnuðu henni með byssu og rændu af henni mjög verðmætum skartgripum.

Í desember fór að sjást til Kim opinberlega og hún var ein af konunum sem sátu fyrir á jóladagatali tímaritsins Love. Þá birti hún mynd af sjálfri sér á Twitter í nóvember sem hún fjarlægði skömmu síðar án útskýringa.

Ýmislegt hefur gengið á í millitíðinni en mikið hefur verið slúðrað um meinta bresti í hjónabandi hennar og Kanye West. Einhverjir fjölmiðlar hafa fullyrt að skilnaður sé í vændum.

En í gær sneri Kim aftur á samfélagsmiðla með látum. Hún birti þessa mynd af fjölskyldusinni á Instagram en myndin er sú fyrsta sem hún birtir þar síðan í október. Hún hélt svo á Twitter.

View this post on Instagram

family

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on

Þar fór hún að svara aðdáendum sínum sem fögnuðu endurkomu hennar

Hún birti svo þetta myndband sem virðist hafa þann tilgang að slá á sögusagnir um skilnað hennar og Kanye

Auglýsing

læk

Instagram