Allir vinirnir koma saman í sérstökum sjónvarpsþætti til að heiðra goðsögn

Matthew Perry, Jennifer Aniston, David Schwimmer, Courteney Cox, Matt LeBlanc, og Lisa Kudrow koma öll fram í væntanlegum þætti á sjónvarpsstöðinni NBC til að heiðra leikstjórann James Burrows. Þetta kemur fram á fréttavef Buzzfeed.

Burrows þessi er goðsögn í sjónvarpsbransanum og leikstýrði 15 þáttum af Friends. Þrátt fyrir að allir vinirnir komi saman í þættinum er ekki víst hvort þau fari endurvekji vinina sem við þekkjum öll. Aðdáendur þáttanna vona hins vegar það besta.

Bob Greenblatt, yfirmaður aþreyingardeildar NBC, sagði leyndardómsfullur á blaðamannafundi í dag að hann vonaðist til þess að fá alla vinina í sama herbergi. Hann sagðist þó ekki vera viss um að það tækist.

Þátturinn verður sýndur 21. febrúar og stjörnur úr þáttum á borð við Cheers, Frasier og Mike & Molly koma fram.

Auglýsing

læk

Instagram