Andið eðlilega valin í aðalkeppnina á kvikmyndahátíðinni Sundance

Kvikmyndin Andið eðlilega eftir Ísold Uggadóttur hefur verið valin til þátttöku í aðalkeppni á hinni virtu Sundance kvikmyndahátíð í Park City í Bandaríkjum í janúar.

Ísold Uggadóttir er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar og með aðalhlutverk fara leikkonurnar Kristín Þóra Haraldsdóttir og Babetida Sadjo.

Í tilkynningu frá aðstandendum myndarinnar kemur fram að Andið eðlilega flétti saman sögum tveggja ólíkra kvenna, hælisleitanda frá Gíneu-Bissá og ungrar íslenskrar konu sem hefur störf við vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli. „Leiðir þeirra liggja saman á örlagastundu í lífi beggja og tengjast þær óvæntum böndum,“ segir þar.

Andið eðlilega er fyrsta kvikmynd Ísoldar í fullri lengd en áður hefur hún leikstýrt stuttmyndunum Góðir gestir, Njálsgata, Clean og Útrás Reykjavík, sem allar voru valdar til sýninga á kvikmyndahátíðum víða um heim og hlutu fjölda viðurkenninga. Ísold lauk meistaranámi í leikstjórn og handritagerð frá Columbia háskóla í New York vorið 2011.

Sundance kvikmyndahátíðin hefst 18. janúar á næsta ári. Andið eðlilega keppir í öðrum af tveimur flokkum aðalkeppninnar, World Cinema Dramatic Competition, þar sem 12 kvikmyndir framleiddar utan Bandaríkjanna voru valdar úr þúsundum innsendra mynda.

Hátíðin var stofnuð af leikaranum og leikstjóranum Robert Redford og telst ein virtasta kvikmyndahátíð Norður-Ameríku. Á meðal leikstjóra sem hófu frægðargöngu sína á Sundance eru Paul Thomas Anderson, Jim Jarmush, Steven Soderbergh, Wes Anderson, Darren Aronofsky, Quentin Tarantino og Coen bræður.

Skúli Fr. Malmquist framleiðir myndina fyrir hönd Zik Zak kvikmynda en meðframleiðendur eru þær Inga Lind Karlsdóttir, Lilja Ósk Snorradóttir og Birna Anna Björnsdóttir, auk meðframleiðenda frá Belgíu og Svíþjóð.

Andið eðlilega verður frumsýnd á Íslandi í febrúar á næsta ári og mun Sena dreifa myndinni. The Match Factory sér um sölu og dreifingu á heimsvísu.

Auglýsing

læk

Instagram