Annie Mist sigraði uppgjör dætranna og setti heimsmet

Annie Mist Þórisdóttir varð hlutskörpust í nótt þegar æfingarnar í fimmta hluta Crossfit Open voru kynntar í beinni útsendingu frá CrossFit Reykjavík. Mótherjar hennar voru þær Katrín Tanja Davíðsdóttir og Sara Sigmundsdóttir. Annie lét sér ekki nægja að sigra heldur setti hún heimsmet í greininni.

Sjá einnig: Íslensku crossfit-drottningarnar takast á í beinni útsendingu frá CrossFit Reykjavík

Æfingin einkenndist af upphífingum og lyftingum þar sem keppendur þurftu að ná sem flestum endurtekningum á sjö mínútum. Annie náði 178 endurtekningum, Katrínu Tanja, náði 176. Sara var ekki langt undan og gat með 171 endurtekningu.

Crossfit Open er undankeppni heimsleikanna í Crossfit og er, eins og nafnið gefur til kynna, öllum iðkendum opin. Fyrirkomulagið er þannig að allir þátttakendur fá í fimm vikur, eina æfingu á viku sem þeir eiga að framkvæma. Þetta gildir um alla, sama hvar í heiminum þeir eru. Fimmta og síðasta æfingin var kynnt í Crossfit Reykjavík í gærkvöldi rétt áður sen stelpurnar öttu kappi.

Sjáðu útsendingu gærkvöldsins hér að neðan

https://www.facebook.com/CrossFitGames/videos/1928673953841120/

Auglýsing

læk

Instagram