Ashton Kutcher og Mila Kunis grínast með slúðursögur af skilnaði í fyndnu myndbandi: „Kannski eigum við von á tvíburum í næstu viku“

Bandaríski leikarinn Ashton Kutcher birti í gær skemmtilegt myndband á Instagram-síðu sinni þar sem hann fer yfir slúðursögur með Milu Kunis, eiginkonu sinni. Þau lesa meðal annars frétt þar sem kemur fram að þau séu að skilja og að hún hafi tekið börn þeirra frá honum.

Fréttirnar virðast koma þeim töluvert á óvart en Kutcher er þó sérstaklega hissa yfir því að hún hafi tekið börnin frá honum. „Fæ ég ekki að sjá börnin lengur?“ segir hann.

„Gangi ykkur vel að selja tímarit í þessari viku. Kannski verður konan mín ólétt af tvíburum í næstu viku, í þriðja skipti. En hver er að telja?“ skrifar Kutcher við myndbandið á Instagram.

Mila Kun­is og Ashton Kutcher hafa verið gift frá ár­inu 2015 og eiga tvö börn sam­an.

Auglýsing

læk

Instagram