today-is-a-good-day

Barnaheill og Blátt áfram sameina krafta sína: „Með þessu skrefi er verið að samnýta krafta og þekkingu félaganna“

Stjórnir Barnaheilla og Blátt áfram hafa tekið þá ákvörðun að sameina krafta sína undir nafni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Verkefni Blátt áfram verða því hluti af þeirri starfsemi Barnaheilla sem snýr að vernd barna gegn ofbeldi.

Tilgangurinn er að samnýta krafta beggja samtaka að því sameiginlega markmiði að berjast gegn ofbeldi á börnum. Verkefni Blátt áfram munu því áfram snúast um vernd gegn ofbeldi á börnum. Þau felast að stærstum hluta í vitundarvakningu, fræðslu og forvörnum á því sviði. Samtökin vilja með þessu sýna gott fordæmi og trúa því að sameinuð séu þau sterkari rödd og öflugra hreyfiafl með þekkingu og reynslu innanborðs. Þau geti því frekar náð fram enn meiri árangri í baráttunni gegn ofbeldi á börnum en hingað til.

„Við teljum þetta vera mikilvæg skilaboð til samfélagsins um að við séum sífellt að leita leiða til að verða enn sterkari málsvari barna. Með þessu skrefi er verið að samnýta krafta og þekkingu félaganna, með sameinuðum kröftum erum við enn öflugri málsvarar fyrir börn. Barnaheill eru virt samtök á alþjóðavísu og við teljum að verkefni Blátt áfram muni dafna innan raða Barnaheilla,” segir Sigríður Björnsdóttir formaður Blátt áfram.

„Barnaheill verða áfram ein öflugustu frjálsu félagasamtökin á Íslandi sem vinna að vernd barna gegn ofbeldi og forvörnum á því sviði. Blátt áfram hafa unnið gríðarlega gott starf varðandi vernd gegn kynferðisofbeldi á börnum. Við erum mjög stolt af því að þau sameini starfsemi sína Barnaheillum.” segir Harpa Rut Hilmarsdóttir formaður Barnaheilla.

Framkvæmdastjóri Barnaheilla verður áfram Erna Reynisdóttir en við starfslið Barnaheilla bætast þrír starfsmenn frá Blátt áfram. Starfsemi samtakanna verður fyrst um sinn á tveimur starfsstöðum, á Háaleitisbraut 13 og í Fákafeni 9 en stefnt er að flutningi í sameiginlegt húsnæði síðar á árinu.

Auglýsing

læk

Instagram