Íslands­deild Amnesty Internati­onal tekur þátt í Gleði­göng­unni Reykjavík Pride

Íslands­deild Amnesty Internati­onal tekur þátt í Gleði­göng­unni Reykjavík Pride laug­ar­daginn 17. ágúst, fyrir fólk sem hefur ekki frelsi til að elska eða vera það sjálft án þess að líf þess sé í hættu.

Gleðigangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00. Líkt og áður mun ungl­iða­hreyfing Amnesty bæði taka þátt í göng­unni sjálfri og standa fyrir undir­skrifta­söfnun í Hljóm­skála­garð­inum að göngu lokinni.

Í ár safnar Amnesty undir­skriftum fyrir mál Zak Kostopoulos, grísks samkyn­hneigðs aðgerða- og mann­rétt­inda­sinna, sem lést 21. sept­ember 2018 í kjölfar fólsku­legrar líkams­árásar.

Amnesty Internati­onal krefst þess að dóms­mála­ráð­herra Grikk­lands tryggi að þeir sem bera ábyrgð á dauða Zaks verði dregnir fyrir dóm. Einnig er krafist þess að yfir­völd rann­saki hvort ástæða árás­anna hafi verið vegna haturs, mismun­unar eða annarra fordóma.

„Okkur er það mikil ánægja að fá með okkur til liðs aðal­fram­kvæmda­stjóra Amnesty Internati­onal, Kumi Naidoo,  sem tekur þátt í göng­unni með okkur á laug­ar­daginn. Kumi Naidoo er reynslu­mikill aðgerðasinni og hefur lengi starfað í þágu mann­rétt­inda í sínu heimalandi Suður-Afríku auk þess sem hann hefur gegnt starfi aðal­fram­kvæmda­stjóra Green­peace Internati­onal,“ segir í tilkynningu.

Auglýsing

læk

Instagram