Ben Stiller ánægður með Ófærð: „Elska þessa þætti og Ólaf Darra“

Bandaríski leikarinn Ben Stiller er aðdáandi sjónvarpsþáttanna Ófærð ef marka má færslu hans á Twitter í gærkvöldi. Önnur sería af Ófærð hófst á RÚV í gær og Stiller lýsti yfir aðdáun sinni á þáttunum og Ólafi Darra með tísti.

„Elska þessa þætti og Ólaf Darra,“ skrifaði hann og vitnaði í tíst frá The Killing Times sem óskaði Íslendingum til hamingju með Ófærð.

Sjá einnig: Ben Stiller talar fallega um Ólaf Darra: „Þessi gaur er magnaður leikari“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ben Stiller hrósar Ólafi á Twitter en árið 2016 hrósaði hann honum fyrir hlutverk sitt í bresku þáttaröðinni The Missing og sagði að hann væri magnaður leikari.

Ben Stiller kom hingað til lands sumarið 2012 til að leikstýra og leika í kvikmyndinni Secret Life of Walter Mitty. Ólafur Darri lék í myndinni og urðu þeir góðir vinir.

Sjá einnig: Twitter fylgdist með frumsýningu á Ófærð 2: „Eins og langur þáttur af bílastæðaavörðunum“

„Sömuleiðis. Gleðilega hátíð bróðir,“ skrifaði Ólafur Darri í svari við tísti Ben Stiller.

Auglýsing

læk

Instagram