Ben Stiller talar fallega um Ólaf Darra: „Þessi gaur er magnaður leikari“

Bandaríska leikaranum Ben Stiller þykir mikið til Ólafs Darra koma, ef marka má færslu sem hann birti á Twitter rétt í þessu. Stiller vísaði í færslu um hlutverk Ólafs Darra í bresku þáttaröðinni The Missing. „Þessi gaur er magnaður leikari,“ segir Stiller um okkar mann.

Ólafur Darri fer með hlutverk blaðamannsins Stefans Anderssen í The Missing sem eru sýndir á BBC í Bretlandi. Persóna Ólafs er fengin til að aðstoða við að rannsaka dularfullt mál. Fyrsta þáttaröðin sló í gegn árið 2014 og fékk frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum og áhorfendum.

Sjá einnig: Ólafur Darri í sjóðandi heitri hópkynlífssenu í Zoolander 2, sjáðu myndbandið

Ben Stiller kom hingað til lands sumarið 2012 til að leikstýra og leika í kvikmyndinni Secret Life of Walter Mitty. Ólafur Darri lék í myndinni og urðu þeir góðir vinir.

„Það er gaman að fá að vinna aftur með Ben. Einhverra hluta vegna þá bauð hann mér þetta,“ sagði Ólafur í samtali við Nútímann um Stiller þegar hann fékk lítið hlutverk í grínmyndinni Zoolander 2.

Auglýsing

læk

Instagram