Benedikt biðst afsökunar á því að veita Hjalta meðmæli: Vildi ekki rétta stöðu Hjalta gagnvart brotaþola

Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, segir í yfirlýsingu sem birt er á vef RÚV að hann hafi ekki ætlað að rétta stöðu Hjalta Sigurjóns Haukssonar gagnvart brotaþola hans með því að veita honum meðmæli á umsókn um uppreista æru. Hann biður brotaþola Hjalta afsökunar.

Vísir greindi frá því í dag að Benedikt hafi veitt Hjalta meðmæli en hann fékk uppreist æru í september í fyrra, sama dag og lögmaðurinn Robert Downey. Hjalti var dæmdur í dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti fyrir áralöng kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni árið 2004.

Í yfirlýsingu sinni segist Benedikt vilja biðja þá sem um sárt eiga að binda vegna máls Hjalta Sigurjóns Haukssonar, afsökunar á því að hafa ljáð honum atbeina við umsókn um uppreist æru. „Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunningjafólki okkar hjóna frá skólaárum,“ segir Benedikt.

Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjárhagsmála eða í tengslum við atvinnuleit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.

Benedikt segir að Hjalti hafi leitað til sín um meðmæli vegna uppreistar æru á síðasta ári. „Hann kom til mín með bréf, tilbúið til undirritunar. Ég skrifaði undir bréfið og hef ekki vitað af málinu síðan, fyrr en það kom til opinberrar umfjöllunar nú í sumar,“ segir Benedikt í yfirlýsingunni.

„Ég ræddi ekki meðmælabréfið við nokkurn mann, hvorki í stjórnkerfinu né annars staðar, og hef aldrei verið spurður frekar út í málið. Allur aðdragandi og umbúnaður málsins var sá að verið væri að ganga frá formsatriði fyrir umsókn til stjórnsýslunnar.“

Benedikt segist aldrei litið svo á að uppreist æru væri annað en lagalegt úrræði fyrir dæmda brotamenn til að öðlast að nýju tiltekin borgaraleg réttindi. „Sá hugur bjó ekki að baki að rétta stöðu Hjalta gagnvart fórnarlambi hans. Hjalta hef ég sagt að horfast í augu við gjörðir sínar og iðrast þeirra,“ segir hann.

„Það sem átti hér að vera lítið góðverk við dæmdan mann hefur snúist upp í framhald harmleiks brotaþola. Á því biðst ég enn og aftur afsökunar.“

Auglýsing

læk

Instagram