Beyoncé birtir fullt af myndum frá Íslandi

Söngkonan Beyoncé Knowles hefur birt fjölda mynda frá ferðalagi sínu til Íslands ásamt eiginmanni sínum, rapparanum Jay-Z á vefsíðu sinni.

Hjónin komu hingað til lands í byrjun desember til að fagna 45 ára afmæli rapparans og dvöldu í lúxusbústaðnum The Trophy Lodge í Biskupstungum.

Þau ferðuðust víða um landið í þyrlu, skoðuðu Skógarfoss, eldgosið í Holuhrauni og skelltu sér í Bláa lónið.

Þau voru augljóslega vel búin fyrir kuldann.

Jay-Z fékk köku og söng frá eiginkonu sinni á afmælisdaginn.

Bey-Jay-Iceland-8

Útsýnið var ekki slæmt.

Bey-Jay-Iceland-4

Blue Ivy, dóttir hjónanna, kom til landsins ásamt fjölskyldu hjónanna.

Bey-Jay-Iceland-5 Bey-Jay-Iceland-3

Jay-Z og Beyoncé kíktu upp á Langjökul.

Bey-Jay-Iceland-14

Og stemningin í Bláa lóninu var góð.

Bey-Jay-Iceland-7 Bey-Jay-Iceland-6JPG

Við myndum líka skála í kampavíni ef þetta væri fararskjótinn okkar.

Bey-Jay-Iceland-9

Beyonce bregður á leik.

Bey-Jay-Iceland-13

Jay-Z bregður ekki á leik.

Bey-Jay-Iceland-10 Bey-Jay-Iceland-11

Í stuði við Skógarfoss.

Bey-Jay-Iceland-12

Auglýsing

læk

Instagram