Björn Bragi biðst afsökunar – Áreitti 17 ára stúlku: „Ég snerti hana á ósæmilegan hátt“

Myndband sem sýndi skemmtikraftinn og uppistandarann Björn Bragi Arnarsson vera að þukla á 17 ára stúlku fór í dreifingu á samskiptamiðlum í gærkvöldi. DV.is greindi fyrst frá málinu en atvikið átti sér stað á Akureyri um helgina. Hann hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins.

Seint aðfaranótt sunnudags hitti ég stúlku sem ég þekkti ekki. Við áttum stutt samskipti og ég snerti hana á ósæmilegan hátt. Af þessu var tekið myndband sem er nú í dreifingu,“ skrifar Björn Bragi í færslu sem hann birtir á Facebook og sjá má hér að neðan.

Í yfirlýsingunni greinir Björn frá því að hann hafi haft samband við stúlkuna og fjölskyldu hennar og beðið þau afsökunar á hegðun sinni. „Þessi hegðun mín var algjörlega óásættanleg og ég er miður mín yfir því að hafa hagað mér með þessum hætti. Það að ég hafi verið undir áhrifum áfengis er engin afsökun. Ég setti mig í samband við stúlkuna og fjölskyldu hennar fyrr í kvöld. Ég bað hana einlægrar afsökunar á framkomu minni.“

Hann segist taka fulla ábyrgð af atvikinu og heldur áfram: „Ég átti gott samtal við móður stúlkunnar. Hún sagði mér að fjölmiðlar hefðu reynt að ná sambandi við bæði sig og stúlkuna. Hún vildi koma á framfæri ósk um að þau yrðu látin í friði. Það vil ég líka gera. Ég ber alla ábyrgð hér,“ skrifaði Björn Bragi.

Yfirlýsingin

 

Auglýsing

læk

Instagram