Brynjar Níelsson byrjaður á Twitter: „Misskilningur milli mín og Áslaugar Örnu, ég bað hana um að koma með á Tinder ekki Twitter“

Þingmaðurinn Brynjar Níelsson er byrjaður á Twitter. Hann var ansi duglegur að tjá sig á Facebook og vöktu stöðuuppfærslur hans mikla athygli, svo mikla reyndar að hann hætti á samfélagsmiðlinum í nóvember á síðasta ári.

Sjá einnig: Brynjar Níelsson hættur á Facebook: „Eiginkonan mun gleðjast og kannski láta sjá sig aftur á meðal fólks“

Hann byrjaði þó aftur á Facebook í byrjun árs en með skilyrðum frá eiginkonunni.

Áslaug Arna, samflokkskona Brynjars, virðist hafa átt einhvern þátt í komu hans á Twitter en bætir við að hún taki enga ábyrgð á því sem gerist eftir þetta

Hann virðist vera fljótur að læra og byrjar með krafti!

Auglýsing

læk

Instagram