CrossFit heimurinn rifjar upp viðtal við hina 18 ára Katrínu Tönju sem ætlaði alla leið: „Ég þurfti eitthvað krefjandi og fann það“

Á Facebook-síðu heimsleikanna í CrossFit er rifjað upp í dag fjögura ára gamalt viðtal við Katrínu Tönju Davíðsdóttur. Þá var Katrín 18 ára og dreymdi um að ná jafn langt og Annie Mist sem hafði þá nýlega hampað heimsmeistaratitlinum í CrossFit.

Sjá einnig: Playboy fjallar um Katrínu Tönju: „Lyftir eins og Hulk og lítur út eins og leikfélagi“

Það er óhætt að segja að Katrín hafi náð markmiðum sínum en frá því viðtalið var tekið hefur hún tvisvar verið krýnd hraustasta kona heims.

Viðtalið sem sjá má hér að neðan hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð og hefur þegar þessi frétt er skrifuð verið spilað rúmlega 300 þúsund sinnum.

https://www.facebook.com/CrossFitGames/videos/1732786516763199/

Auglýsing

læk

Instagram