Danny Brown og Nadia Rose koma fram á Sónar, sjáðu listann yfir fyrstu listamennina

Fyrstu listamennirnir hafa verið staðfestir á tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík sem fer fram 16. og 17. mars á næsta ári í Hörpu. Bandaríski rapparinn Danny Brown og hin upprennandi grime-stjarna Nadia Rose frá London koma fram á hátíðinni.

„Meðal innlendra listamanna sem nú eru kynntir til leiks er ein stærsta útflutningsvara íslenskrar tónlistar síðastliðið ár, Bjarki, sem fyrst kom fram í bílakjallara hátíðarinnar fyrir tveim árum og hefur síðan troðfyllt tónlistarhús og hátíðarsvið um heim allan,“ segir í tilkynningu frá Sónar.

Hann kemur að þessu sinni fram á öðru af stóru sviðunum í Hörpu.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að aðstandendur hátíðarinnar séu sérstaklega stoltir af því að fá tónlistarkonuna Jlin, sem er að vekja gríðarlega athygli fyrir breiðskífuna Black Origami, til Íslands. „Og að hin eindæmum hæfileikaríka Eva808 muni loks stíga á stokk á tónlistarhátíð í heimalandi sínu,“ segir þar.

Alls verður boðið upp á tónleika rúmlega 50 hjómsveita og listamanna á hátíðinni á fjórum sviðum, m.a. í sitjandi umhverfi Kaldalóns og bílakjallara hússins sem breytt verður í næturklúbb.

Listamenn sem nú eru kynntir til leiks eru:

Danny Brown (US)
Nadia Rose (UK)
Bjarki (IS)
Jlin (US)
Lena Willikens (DE)
Högni (IS)
Cassy b2b Yamaho (UK / IS)
Bad Gyal (ES)
Volruptus (IS)
JóiPé x Króli (IS)
Eva808 (IS)
Vök (IS)

Miðasala á hátíðina er hafin og fer fram á midi.is.

Auglýsing

læk

Instagram