Auglýsing

Dómsmálaráðuneytið skammar fjármálaráðherra: „Pólitísk afskipti af rannsóknum sakamála eru til þess fallin að grafa undan réttarríkinu“

Dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu þar sem ítrekað er tekið fram að hvorki ráðuneyti né ráðherra skuli hafi afskipti af því hvort eða hvernig mál séu tekin til rannsóknar sem sakamál.

„Íslenskt sakamálaréttarfar byggir á því grundvallarsjónarmiði að meðferð sakamála eigi ekki að lúta pólitískum afskiptum valdhafa“

Tilefnið er að sjálfsögðu erindi sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra sendi lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær þar sem hann kvartaði undan netsölu áfengis.

„Þróun síðustu áratuga hefur verið sú að efla enn frekar sjálfstæði ákæruvalds og rannsóknarvalds. Ríkissaksóknari, sem nýtur sjálfstæðis í embætti sínu, er jafnframt æðsti yfirmaður sakamálarannsókna og tekur ekki við fyrirmælum frá neinum öðrum stjórnvöldum. Er þetta í samræmi við grundvallarreglur réttarríkisins um að sakamálarannsóknir lúti einungis lögum en ekki pólitískum afskiptum. Þróunin hérlendis hefur verið sú að færa þetta vald frá dómsmálaráðuneytinu og til ríkissaksóknara. Af þessu leiðir að dómsmálaráðuneyti og dómsmálaráðherra hafa engin afskipti af sakamálarannsóknum á Íslandi,“ segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.

Þá segir enn fremur að slík afskipti geti haft þau áhrif að sá sem sætir rannsókn telji sig ekki hljóta réttláta málsmeðferð.

„Pólitísk afskipti af rannsóknum sakamála eru til þess fallin að grafa undan réttarríkinu. Þau geta leitt til þess að sá sem sætir rannsókn telji sig ekki hljóta réttláta málsmeðferð þar sem hlutleysis hafi ekki verið gætt við ákvörðun um saksókn. Af því leiðir að ráðuneyti stjórnarráðsins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eiga ekki að hafa afskipti af því hvort eða hvernig mál eru tekin til rannsóknar sem sakamál.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing