Eminem dissar rappara sem sagði að dóttir hans væri sjóðandi heit

Rapparinn Eminem hefur sent frá sér lag þar sem hann dissar rapparann Machine Gun Kelly. Lagið heitir Killshot og þú getur að sjálfsögðu hlusta á það hér fyrir neðan.

Machine Gun Kelly tísti árið 2012 um dóttur Eminem og sagði að hún væri „sjóðandi heit“ (e. hot as fuck). Ummælin féllu ekki í kramið hjá Eminem sem rappaði fyrst um Machine Gun Kelly í laginu Not Alike og fór ekki um hann fögrum orðum.

Machine Gun Kelly svaraði þá fyrir sig í laginu Rap Devil, gerði meðal annars grín að skeggi Eminem, sagði hann leiðinlegan og edrú ásamt því að gera athugasemdir við hvernig hann klæðir sig.

Killshot hefst á því að Eminem segir Machine Gun að halda kjafti áður en hann veður í nafn hans og hárgreiðslu: „How you gonna name yourself after a fucking gun and have a man bun?“

Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram