Eva brenndi tyrkneska fánann fyrir framan Utanríkisráðuneytið: „Þau koma fram eins og tyrknesk stjórnvöld séu einhverskonar samherjar okkar”

Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar, brenndi tyrkneska fánann fyrir framan Utanríkisráðuneytið í mótmælaskyni á miðvikudaginn. Eva útskýrði hvers vegna hún hafi ákveðið að brenna fánann í bloggfærslu á heimasíðu sinni í morgun.

Haukur, sonur Evu, er talinn hafa fallið loftárásum Tyrkja á búðir Kúrda í Afrin í Sýrlandi. Eva segir að hún hafi brennt fánann til þess að vekja athygli á því að í íslenskum lögum séu ákveði sem gera það refsivert að móðga þjóðhöfðingja og vanvirða þjóðfána og til þess að beina sjónum að pólitískum og viðskipta tengslum Íslands og Tyrklands.

Sjá einnig: Minningarorð Frosta um Hauk Hilmarsson vekja mikla athygli: „Haukur Hilmarsson var hetja“

Hún segir að tyrknesk yfirvöld beri ábyrgð á hvarfi eða dauða Hauks og íslensk yfirvöld hafi ekki beitt neinum pólitískum þrýstingi til þess að komast að afdrifum hans.

„Þau koma fram eins og tyrknesk stjórnvöld séu einhverskonar samherjar okkar í leitinni að honum. Daginn eftir að einhver hættulegasti fasisti veraldar fékk alræðisvald í heimaríki sínu, undirritaði Íslenska ríkið viðskiptasamning við hið sama ríki. Um er að ræða ríki sem ber ábyrgð á stríðsglæpum og margháttuðum mannréttindabrotum allt frá pyntingum til þeirra mannréttindabrota sem felast í því að leyna afdrifum Hauks Hilmarssonar fyrir fjölskyldu hans. ” segir Eva.

Þetta er því tilvalinn tími til þess að láta reyna á þessi móðgunarlög, sem ganga augljóslega í berhögg við tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu.

Hægt er að lesa færslu Evu í heild sinni með því að smella hér.

Auglýsing

læk

Instagram