Ferðamenn tjölduðu við Hörpu og spöruðu sér 2.200 krónur: „Nei nú er nóg komið“

Sindri Hjartarson, markaðsfulltrúi Hörpu, rak upp stór augu þegar hann mætti til vinnu í húsinu í morgun. Ferðamenn höfðu þá slegið upp tjaldi á umferðareyju við húsið.

Sjá einnig: Ferðamaðurinn kúkaði við hliðina á skilti sem benti á góða salernisaðstöðu í aðeins 50 metra fjarlægð

2.200 krónur kostar að tjalda á tjaldsvæðinu í Laugardal þannig að ferðamennirnir spöruðu allavega eitthvað. „Nei nú er nóg komið,“ segir Sindri í færslu á Twitter en með færslunni fylgir mögnuð mynd. 

Auglýsing

læk

Instagram