Auglýsing

Fjórir drukknað á fimm dögum á Íslendingaslóðum á Spáni: Ferðamenn beðnir að fara varlega

Þó veðrið leiki ekki við okkur á Íslandi þessa dagana er ekki hægt að segja það sama um sólþyrsta Íslendinga á Spáni.

Þó hefur strandsumarið farið skelfilega af stað á Costa Blanca svæðinu þar sem mikill fjöldi Íslendinga býr.

Fjórir hafa látist er þeir drukknuðu í sjónum meðfram strandlengjunni á svæðinu og endurlífga þurfti tvo aðra.

Ástæðan fyrir þessu er sögð vera sterkur austanvindur sem gerir það að verkum að sterk undiralda myndast sem sogar fólk niður og í burtu frá ströndinni.

Slíkar öldur eru sérlega lúmskar og eru sólþyrstir strandgestir beðnir um að fara að öllu með gát og alls ekki leyfa börnum að vera ein í sjónum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing